Skráðu þig á biðlista fyrir karlahópinn Kraftur - Hugarró - Bræðralag

Mig hefur lengi langað að byrja með karlahóp fyrir karla ca. 40 ára plús, sem að hafa orðið mikla reynslu af lífinu og eru komnir á stað þar sem að er farið að hægjast aðeins á mögulega í þessu daglega amstri, en löngunin til að halda áfram að vaxa og þroskast er farin að ýta sterkt undir.

Markmiðið okkar er að skapa hérna samfélag karla þar sem að ríkir trúnaður og traust, þar sem að við getum óhræddir talað um hvað gengur á í lífi okkar og jafnvel leitað ráða hjá hópnum, ef þar býr reynsla af svipuðum aðstæðum.
Við erum hérna til vaxtar og tengsla. Við viljum rjúfa okkur úr vaxandi einangrun og eiga samfélag með öðrum karlmönnum, í sömu hugleiðingum.

Við erum ekki hérna sem sérfræðingar, heldur ætlum við að koma hérna saman sem leikmenn og félagar, hvor öðrum til stuðnings, en hópurinn, umræður og verkefni eru leidd áfram af Badda Markþjálfa.

    We respect your privacy. Unsubscribe at any time.